Bloggfærslur mánaðarins, mars 2011

Fundur vegna Norðurlandsmótaraðarinnar 2011

Miðvikudaginn 2. mars s.l. var haldinn samráðsfundur Golfklúbbanna á Norðurlandi vegna Norðurlandsmótaraðar unglinga sumarið 2011.  Fundurinn var haldinn í golfskálanum á Akureyri og á hann mættu fulltrúar frá Golfklúbbi Akureyrar, Golfklúbbnum Hamri á Dalvík, Golfklúbbi Ólafsfjarðar og Golfklúbbi Sauðárkróks.

Á fundinum var ákveðið að hafa aldursskiptingu óbreytta frá því í fyrra.  Eftirtaldir flokkar keppa til Norðurlandsmeistaratitils. 

12 ára og yngri, 14 ára og yngri, 15-16 ára og 17-18 ára. Einnig verður keppt í byrjendaflokki en ekki verður veittur Norðurlandsmeistaratitill í þeim flokki.

Mótaniðurröðun sumarsins var einnig sett upp fyrir höggleiksmótin. Þá var ákveðið að reyna að halda sérstakt holukeppnismót á Húsavík um miðbik sumars þar sem að efstu keppendur í hverjum flokkum myndu keppa. Væntanlega verður búið að spila þrjú mót þegar þetta mót verður og verða tvö bestu sem telja til þáttöku í holukeppnismótið.

Dagsetningar og staðsetningar mótaraðarinnar:

  • 1. 26. júní / sunnudagur - 1. mót í stigakeppni - Dalvík
  • 2. 3. júlí / sunnudagur - 2. mót í stigakeppni - Sauðárkrókur
  • 3. 19. júlí / þriðjudagur - 3. mót í stigakeppni - Ólafsfjörður
  • 4. ???? /????: Húsavík - Norðurlandsmót í holukeppni - Húsavík
  • 5. 4. september/ sunnudagur - 4. mót í stigakeppni - Akureyri

Að lokum var ákveðið að breyta stigagjöfinni til samræmis við það sem að gerist á mótaröðum GSÍ. Stigagjöfin verður sýnd á uppfærðu mótafyrirkomulagi hér vinstra megin á síðunni.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband