Samráðsfundur um mótaröðina
15.2.2010 | 16:46
Samráðsfundur golfklúbbanna á Norðurlandi sem að standa að mótaröðinni var haldinn á Akureyri 9.febrúar s.l.
Góð mæting var frá þeim klúbbum sem að standa að mótaröðinni.
Búið er að uppfæra mótafyrirkomulagið fyrir sumarið og er það að finna hér vinstra megin á síðunni.
Búið er að negla niður mótin fyrir sumarið:
13.júní á Dalvík, 4. júlí á Sauðárkróki, 27. júlí á Ólafsfirði og 29.ágúst á Akureyri. Þá er einnig stefnt að því að halda sveitakeppni klúbbanna á Húsavík 10.ágúst.
Það er því spennandi sumar framundan á mótaröðinni okkar.
Flokkur: Golffréttir | Breytt s.d. kl. 16:48 | Facebook