Fyrsta mótið í Norðurlandsmótaröðinni 27.júní n.k.

 

Nýprent mótið á Sauðárkróki hefst kl. 08:00, laugardaginn 27.júní og verða elstu ræstir út fyrst og yngstu síðast. Ræst verður í tvennu lagi og verðlaunaafhending verður einnig í tvennu lagi.   Mótið er fyrir alla, byrjendur sem lengra komna

Mótið er flokkaskipt og kynjaskipt.

Við viljum vekja sérstaka athygli á breyttri flokkaskiptingu og verðlaunum

Flokkarnir eru þessir:  

17-21 ára piltar og stúlkur – 18 holur(piltar á hvítum teigum)

15-16 ára drengir og telpur – 18 holur

14-ára og yngri strákar og stelpur – 18 holur

12 ára og yngri strákar og stelpur sem spila 9 holur

Byrjendaflokkur strákar og stelpur spilar 9 holur af gullteigum  

  • Opnað hefur verið fyrir skráningu á www.golf.is
  • Nándarverðlaun verða veitt og vippkeppni í öllum flokkum
  • Verðlaun fyrir besta skor í þremur verðlaunasætum í flokkum 12 ára og eldri.
  • Verðlaun fyrir flesta punkta í tveimur verðlaunasætum í 12 ára og yngri flokki (einn opinn flokkur)
  • Verðlaun fyrir flesta punkta í fimm verðlaunasætum í 18 holu flokkum (einn opinn flokkur). Virk forgjöf er skilyrði.
  • Allir í byrjendaflokkum fá verðlaunapening
  • Nýprentbikarinn veittur fyrir lægsta skor í 18 holu flokkunum.

Hvetjum alla til að mæta á Hlíðarendavöll

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband