Dagsetningar fyrir sumarið 2013 komnar inn

Þá er búið að ákveða dagsetningar fyrir mótaröðina í sumar en þær eru þessar:

Dalvík 9.júní

Sauðárkrókur 30.júní

Ólafsfjörður 30.júlí

Akureyri 1.september

Fyrirkomulagið verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Þó ber að áretta að til að geta tekið þátt í mótunum verða keppendur að vera skráðir í einhvern golfklúbb hér Norðanlands.

Þá er líka rétt að benda á að þeir sem að taka þátt í byrjendaflokki mega ekki vera búnir að fá forgjöf.  Ef keppandi sem byrjar t.d. fyrsta mót í byrjendaflokki fær síðan forgjöf fyrir næsta mót þá þarf viðkomandi að fara í sinn aldursflokk á næsta móti.

Nú er  bara um að gera að vera dugleg að æfa og koma öll sterk til leiks í sumar.

Sjáumst öll hress á mótaröðinni í sumar :)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband